Afhending vöru
Vörur eru sóttar í verslun Kjöthússins að Smiðjuvegi 24-26 d.(Rauð gata) Hægt er að óska eftir heimsendingu gegn 2.000 kr. gjaldi.

Ef óskað er eftir heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu er vörunum keyrt út af starfsfólki Kjöthússins og er hægt að óska eftir afhendingardagsetningu og tíma.

Ef óskað er eftir heimsendingu utan höfuðborgarsvæðisins eru vörurnar sendar með Flytjanda og er þá ekki hægt að lofa afhendingardagsetningu og tíma.

Sendingar eru keyrðar út milli 12:00 og 14:00 alla virka daga Pantanir þurfa að berast Kjöthúsinu eigi síðar en kl. 22:00 degi fyrir afhendingu.

Verð
Öll verð á síðunni eru í íslenskum krónum og innihalda virðisaukaskatt.

Greiðslur
Greiða þarf fyrir veitingarnar áður en veitingar eru afgreiddar og afhentar frá Kjöthúsinu, við millifærslu skal senda greiðslukvittun á netfangið kjothusid@kjothusid.is, þegar varan er sótt í verslun er hægt að greiða á staðnum með greiðslukorti. Þegar óskað er eftir heimsendingu er eingöngu hægt að greiða í gegnum greiðslusíðu Valitor

Skila- og endurgreiðsluréttur
Enginn skila- eða endurgreiðsluréttur er á vörunum nema komi upp galli.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við kaupin. Upplýsingar verða ekki afhentar þrija aðila undir neinum kringumstæðum.

Lög og varnarþing
Skilmála þessa ber að túlka samkvæmt íslenskum lögum, ef kemur upp ágeiningur milli kaupenda skal málinu vísað til íslenskra dómstóla.
Kjöthúsið ehf
Kt: 670593-2079
VSK-númer: 38035
Smiðjuveg 24-26 d (Rauð gata)
200 Kópavogur

Upp